Um kórinn

Kór

Háskólakórinn var stofnaður árið 1972 og fagnaði því hálfrar aldar afmæli sínu árið 2022. Kórinn er að jafnaði skipaður 60 til 70 nemendum við Háskóla Íslands, jafnt íslenskum sem erlendum. Kórinn kemur fram við helstu viðburði skólans, svo sem við brautskráningu nemenda auk þess að halda sjálfstæða tónleika á hverri önn.
Þá fer kórinn í árlega vorferð í lok skólaárs, ýmist innanlands eða utan. Kórinn hefur tekið þátt í kóramótum erlendis og unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum. Þá hefur Háskólakórinn gefið út fjölmargar hljómplötur og geisladiska með íslenskri tónlist. Í tilefni af 50 ára afmæli sínu pantaði kórinn verkið The Time is Now eftir Báru Grímsdóttur og frumflutti ásamt Sinfóníuhljómsveit unga fólksins 26. mars 2022. Stjórnandi kórsins er Gunnsteinn Ólafsson.

Kórstjórinn

Gunnsteinn Ólafsson hefur verið stjórnandi Háskólakórsins frá 2007. Hann fæddist á Siglufirði árið 1962 en ólst upp í Kópavogi. Hann stjórnaði Kór Menntaskólans í Kópavogi frá 1979-1983 og samdi fjölmargar tónsmíðar fyrir kórinn undir leiðsögn Jóns Ásgeirssonar, kennara við Tónlistarskólann í Reykjavík. Gunnsteinn stundaði nám í tónsmíðum við Franz Liszt-tónlistarakademíuna í Búdapest 1983-1987 og í hljómsveitarstjórn og tónfræði við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi 1988-1992. Að loknu námi hefur Gunnsteinn starfað sem tónskáld, kór- og hljómsveitarstjóri og tónlistarkennari við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík, seinna MÍT. Hann hefur einnig safnað íslenskum þjóðlögum fyrir Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði og verið listrænn stjórnandi þjóðlagahátíðarinnar þar frá árinu 2000. Þá hefur Gunnsteinn skrifað barnabækur og fræðslubækur um náttúru Íslands.

Æfingar

Æfingar Háskólakórsins fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum í Neskirkju frá klukkan 17:15 til 19:30.

Ef þú hefur einhverjar spurningar um æfingar eða inntökuprufur vinsamlegast hafðu samband við kor@hi.is.